Pabbi minn kenndi mér það þegar gosið í Kröflu hófst 1975 að setja út hvítan disk til að mæla öskufall.  Norður á Dalvík gerðum við þessar rannsóknir nokkur kvöld í röð með fínum árangri, töluvert öskulag kom á diskinn.
Nú er ég að gera samskonar tilraunir með börnunum mínum, að vísu í Reykjavík, en það verður spennandi að sjá hvort eitthvað mælist hjá okkur.
Ég hef reyndar trú á því að niðurstaðan verði í öfugu mæli við fréttaflutning.  Við pabbi komumst að samskonar niðurstöðu í gamla daga, nema þá var mikið öskufall en lítill fréttaflutningur.
Við vorum harðari af okkur í gamla daga.
Núna er starfsvika í deildinni minni í HÍ.  Þessa "frí"-viku eigum við að vinna að verkefnum sem hafa hrannast upp vegna tímaskorts eða almennrar leti....
Af því að ég er hvorki illa haldin af tímaskorti né leti, þá ætla ég að nýta daginn í að vera húsmóðir með meiru.
Ætla að baka í kistuna, sinna þvotti, gera við föt og lesa svo kannski aðeins í skólabókum á milli þess sem ég tek úr ofninum.
Það er svo dásamlegt að gera hlúð að því sem skiptir okkur mestu máli, heimilinu og fjölskyldunni.  Mikið vildi ég að allir væru svo heppnir.
Gott að hvíla sig aðeins á "Iceslave" og velta sér upp úr svínaflensunni.  Ég heyrði í útvarpinu í morgun að það tekur bóluefnið eina til þrjár vikur að verða virkt í líkamanum.  Verður toppnum í útbreiðslu hennar ekki náð eftir þrjár vikur ?  Hvar erum við stödd í prósentutölunni (að 30-50% þjóðarinnar smitist) ? hversu stór hluti þjóðarinnar er nú þegar hugsanlega búinn að smitast?  Verður ekki óþarfi að bólusetja allt þetta fólk fyrst þetta tekur allt svona langan tíma?
Mest liggur náttúrulega á að bólusetja heilbrigðisstarfsmenn, þau þurfa jú að sinna okkur hinum ef við veikjumst.
Spurning með ríkisstjórnina! neee... það myndi ekki breyta neinu.
Langaði bara að láta ykkur vita af því að í Breiðholtinu eru 19°C....ekki amalegt það.  Sól með köflum og mjög hægur andvari.  Dásamlegt.  Vorkenni þeim sem þurfa að vera inni á svona góðviðrisdögum.
Það munaði engu að ég missti áhugann á því að blogga hér inni á moggablogginu... en ég þrjóskast við.  Ég er orðin gríðarlega þreytt á endalausri pólitískri þrætu og skoðunum hér á vefnum, er ekki hægt að hafa þetta aðeins jákvæðara.  Ég fæ nóg af þessari umræðu í fréttatímum og umræðuþáttum bæði í sjónvarpi og útvarpi.  En þetta er víst frjálst val...svo hver skrifar um það sem hann langar og finnst skipta miklu máli.  Ég er bara ekki ein af þeim sem fæ eitthvað út úr því að þykjast hafa vit á öllu því sem gengur á, á landinu okkar litla....ég er löngu hætt að skilja það.  Í staðin sný ég mér bara inná við og sinni þeim sem eru mér næstir...þeir skipta mig öllu máli í lífinu.
áfram við sem skrifum um eitthvað annað en pólitík
Svei mér þá .....ég held að sumarið sé bara komið og ég er sest aftur á skólabekk.  Ég skráði mig í ótrúlega skemmtilegan (a.m.k. eftir einn tíma) kúrs.  Hann fjallar um stjúpfjölskyldur og kennarinn rak okkur á gat á fyrstu mínútunum.  Það er ótrúlegt hvað maður er með fast mótaðar hugmyndir í kollinum..... alveg eins og þessi stjúp...mömmu/pabba pæling.  Merkilegt hvað stjúp-mömmu hugtakið er mun neikvæðara heldur en stjúp-eitthvað annað.  Ef þessi tími var forsmekkurinn af námskeiðinu þá eiga sko eftir að verða lífleg skoðanaskipti í þessum tímum.
Einkunnirnar mínar eru að koma í hús ein af annarri og þetta lofar allt góðu, misgóðu reyndar, allt frá 5,5 upp í 9,0.  Á bara eftir að fá einkunn í díakoníunni og sálgæslunni og þá er allt komið í hús.
Fyrri helmingi starfsþjálfunarinnar er að ljúka og það verður með söknuði sem ég kveð þann góða stað.
Ooog á ég að segja ykkur eitt.... maðurinn minn sem er nú með þeim þrjóskari, hann er fallinn á facebook fráhaldinu.  Hann er kominn með facebook síðu.....  hver hefði trúað því.  Ég stend mig hins vegar vel ennþá.... er ekki komin með svona síðu og hef aldrei verið með hana... en aldrei að segja aldrei...  ég hef vonda reynslu af því.
Jæja....nú er verið að skipleggja að skera niður í skólakerfinu!   Já þetta er frábær hugmynd! eða þannig ! Er ekki rétt að skoða einhverjar aðrar leiðir fyrst.  Mér dettur til dæmis í hug að draga úr rafmagnsnotkun í ráðhúsinu, lækka launin hjá varaborgarfulltrúum, draga úr gæslu í Ráðhúsinu, og síðast en ekki síst væri voða sniðugt að minnka fæðiskostnað um helming.  Sumir í borgarstjórn myndu alveg lifa það af!
Þetta eru alla vegana alveg jafn góðar hugmyndir eins og þær sem eru að koma fram varðandi grunnskólana, þ.e. að draga úr forfallakennslu, draga úr gæslu á skólalóðum og fl. álíka gáfulegt.  Ég held að þeir ættu að skammast sín fyrir að leggja þetta til.  Ekki hef ég heyrt neina umræðu um verulegan niðurskurð í yfirstýringu borgarinnar.
Nóg af skömmum í bili....  Ég skráði mig í sumarkúrsa í Háskólanum áðan.  Er ekki mjög spennt á þessu augnabliki með þetta, en ég veit að þetta er samt það rétta að gera, ég verð örugglega voðalega glöð næsta vetur þegar róðurinn verður mér léttari.  Það sem meira er að BA ritgerðin lætur mig ekki í friði.....svo hver veit nema ég byrji á henni í sumar....en þetta er reyndar ekki ný hugmynd og ég hef heyrt hana frá svo mörgum öðrum .......sem byrjuðu EKKI á henni sumarið fyrir lokaárið.  ....svo ég ætla ekki að vera of  bjartsýn.  En þetta er samt verðugt markmið.
Alveg vissi ég þetta.....það mætti halda að ég væri á sér samningi við algóðan Guð.  Ég káraði prófin í morgun og sat hér og vafraði á netinu og hvað haldið þið að ég hafi séð ? ég er að fá dásamlega heimsókn á morgun... ....  SUMARIÐ KEMUR Í HEIMSÓKN.  Alveg eins og pantað upp úr gömlum Frímannsbæklingi (þeir sem muna eftir þeim).  spáin er dásamleg og ég ætla að sinna garðinum mínum þegar ég verð búin í vinnunni.  Það er búin að vera rigning meira og minna núna meðan ég hef þurft að sitja inni og lesa, og svo þegar þessu öllu er lokið þá bara kemur sumarið.  Ég vona að það sé alkomið.
Annars var ég að ljúka prófunum mínum í morgun og þau gengu svona la la... bíð spennt eftir niðurstöðum.  Og allir vinir mínir í Háskólanum eru bara ennþá á lífi, reyndar eru ekki allir búnir í prófum, en ég held að við höfum þetta flest af.
Mikið svakalega var himininn fallegur í morgun þegar byrjaði að birta, fallegri liti sér maður bara ekki.  Ég fór í mína venjubundnu sundferð í sundhöllina í morgun, það var dásamlegt að sitja úti í heita pottinum eftir sundið, himininn skartaði sínu fegursta og merkilegt nokk, það talaði bara enginn um kreppu.....vá hvað ég var fegin.....ég sem er með vænan skammt af jafnaðargeði og reiðist ekki svo auðveldlega....ég hefði sennilega staðið upp og beðið fólk að stein halda kj....  en sem betur fer kom nú ekki til þess, því enginn nefndi kreppudrusluna á nafn.
Ég hef verið töluvert andlaus síðustu daga.  Ég veit hvers vegna það er! það er vegna þess að pressan á verkefnaskil er að aukast dag frá degi......þetta er ávisst ástand sem ég fer í ....einhver ládeyða yfir mér í marga daga og svo þegar ég kemst í gang þá sprautast hreinlega undan mér verkefnin   ég vona bara að ég fari að komast í gang með þetta.
Langar að benda ykkur á að fara nú út í dag ef þið getið og horfa upp í himininn, það er andleg heilun að gera það, blái liturinn er alveg einstakur á svona köldum dögum.
Njótið dagsins....það ætla ég að gera.   Já og svo hendi ég inn nýjum myndum á eftir ef ég hef tíma.
Já var það ekki.....þetta finnst mér vera aðal fréttin á þessum drottins degi, þetta er það sem snertir mig beint á hverjum einasta degi.  Hvar á ég nú að versla....ég sem var farin að halla mér verulega að Krónunni...
Ég auglýsi hér með eftir kreppu-sparnaðar-raunsæis-matar-uppskriftabók fyrir venjuleg heimili, skrítið að enginn skuli koma með hana á markaðinn, hvar er konan sem gaf einu sinni út svona sparnaðarbók,....þessi frábæra bók var seld í Bónus...að sjáfsögðu.
Ég bíð nú spennt eftir Sullenberger.....var hann ekki á leiðinni að redda þessu fyrir okkur.....hann lofaði....
Mikið skelfing fannst mér leiðinlegt að horfa á spurningaþáttinn Útsvar í gær, ég held að það sé búið að eyðileggja þennan annars skemmtilega þátt fyrir mér....
Það sem mér hefur þótt skemmtilegt við hann er hversu ólíkur hann hefur verið Gettu betur þáttunum.  Nú hef ég ekkert á móti þeim þáttum....horfi og hlusta á þá af áfergju.....en þar eru allir á sama báti....rosaleg keppni, miklar æfingar og mikið skipulag.  En Útsvar á að fá að vera áfram þáttur þar sem alls konar fólk kemur saman og spreytir sig, er kjánalegt og ruglar og bullar og við heima í stofu getum samsamað okkur með, hlegið og skemmt okkur.  Í gærkvöldi var þetta bara aftaka í sjónvarpssal....og Kópavogsdrengirnir æfa sig ekki neitt, nei... þá dreymdi bara óvart alla sömu nóttina merkin fyrir nafnorð og sagnir.......já áttu annan góðan.  Þetta voru þraut skipulagðir Gettu betur drengir....gott ef þeir voru ekki allir í "happa naríunum"  en gáfaðir eru þeir....það fer ekki fram hjá manni.
Niðurstaðan er þá sennilega sú að skemmtanagildi þáttarins er ónýtt fyrir mér, það er alveg augljóst að ekki er hægt að banna bæjarfélögunum að senda unga Gettu betur þátttakendur.  Það væri þó ráð að hafa þetta ekki eins áberandi.  Það væri t.d. hægt að taka Akureyringa sér til fyrirmyndar, í þeirra liði er m.a. einn Gettu betur drengur.....hann er reyndar orðinn fullorðinn í dag, læknir og allt.....en það ber miklu minna á þessu ofurgáfum ef liðið er blandað......sem gerir það að verkum að við hin sem teljum okkur til meðal Jóna skemmtum okkur betur.
En mér fannst Skagfirðingar miklu skemmtilegri og "mannlegri".....það er það sem ég vil horfa á.....hitt fæ ég í framhaldsskóla keppninni Gettu betur.
Jæja, þá er skólinn hafinn...er að fara í íslenska kirkjusögu núna 11:40 og sit á kapelluloftinu í háskólanum með tebollann minn og bíð eftir að tíminn hefjist.  Er búin að fara í eitt viðtal í morgun út af prófunum mínum og veit núna hvaða vitleysu ég var að gera  En mér líður betur á sálinni og ég get ekki annað en lært af þessu.
Ég skellti mér í sund í Sundhöll Reykjavíkur áðan.....ég hef ekki komið þar í .....ja.....sennilega ein tíu ár eða svo.  Þetta var bara nánast óbreytt, skemmtilega gamaldags en mjög þægilegt.  Ætla að gera þetta að vana að fara í sundhöllina áður en ég mæti í skólann......eða reyna það.
Þetta verður hörku misseri hjá mér í skólanum núna....ég er að taka sjö fög sem gerir um 36 einingar....sem er ríflega fullt nám, að vísu eru sumir áfangarnir próflausir og einn er alveg utan skóla þannig að ég held að ég komist alveg yfir þetta, ég ætla að minsta kosti að láta hálfan mánuð líða og ef þetta er mér um megn þá bara segi ég mig úr einhverjum fögum.
Ég verð nú að skrá það hér niður að ég lauk loksins, loksins við gardýnurnar sem ég var að sauma fyrir mömmu mína....ég er búin að vera rooosalega lengi með þær   ætlaði fyrst að rusla þessu af fyrir skóla í haust, en frestaði því svo alltaf og allt í einu var bara komið að prófum og þá var ég löglega afsökuð, nú svo þá var best að hespa þessu bara af um leið og prófin voru búin, þ.e. 18. des....en nei nei þá veiktist mín svona verklega....svo þar fór það....en svo setti ég hörku í mig í gærmorgun og ég sat við skrattans saumavélina fram á kvöld, en nú eru þær sem sagt tilbúnar....straujaðar og allt svo ég get sett þær í póst norður á eftir.  hjúkk hvað ég er fegin að vera búin að ljúka þessu.  Mamma mín verður örugglega voða glöð líka, hún er búin að bíða svo lengi eftir þeim greyjið.
Gangið á Guðs vegum.....
Ég er svo hrifin af fólki sem gefst ekki upp....
Ég á eina vinkonu sem gefst nú ekki svo auðveldlega upp, hún baslar áfram ein með strákana sína tvo sem eru nú ekki þeir auðveldustu í heimi.....ekki nóg með það heldur er hún á fullu í háskólanámi sem hún stendur sig frábærlega í, hún rekur sitt heimili af myndarskap og borgar sínar skuldir án þess að röfla, annað en bankastjórarnir gera ! Og svo það síðasta, þá var hún að fá að vita að hún er með lesblindu á háu stigi, en hefur á sinn einstaka hátt unnið með það sjálf(án þess að vita það) og búið sér til sitt eigin kerfi til að komast áfram í náminu.  ÞETTA KALLA ÉG AÐ GEFAST EKKI UPP ! og áfram bögglast hún þessi yndislega stelpu rófa, og heldur vafalítið áfram að slá okkur öllum við sem erum með henni í náminu.
Koss til þín kæra vinkona.
Fariði varlega í hálkunni sem er á leiðinni og gangið á Guðs vegum....á mannbroddum
Þó talað sé um mánudag til mæðu, þá finnst mér mánudagurinn sem gengur í garð eftir nokkra klukkutíma bara mjög spennandi.  Lífið er að falla í sinn venjubundna farveg, grunnskólarnir byrja í fyrramálið og regla færist yfir allt.  Reyndar hefst háskólinn ekki fyrr en 12. jan, en það er svo sem í lagi af því að ég á eftir að sinna ýmsu áður en ég helli mér í skruddurnar, ætla að sauma stofugardýnur fyrir mömmu og pabba, viða að mér bókum og gögnum fyrir skólann og heimsækja svo fólkið mitt sem ég sinni í gegnum kærleiksþjónustuna, svo mér á svo sem ekki að leiðast.
Talandi um að leiðast þá stefnir allt í það að ég verði grasekkja að einhverju leyti þetta vorið, Erlendur minn er að fara í verkefni í Hollandi, vélarnar sem hann forritar eru smíðaðar í Noregi svo eitthvað dvelur hann þar líka, vona bara að hann verði heima þegar Ólöf Rún fermist...Jú að sjálfsögðu verður hann heima strákurinn, annars er mér að mæta
Ólöfu minni líður betur núna, hitinn hefur lækkað og lyfið virðist hafa góð áhrif, við ætlum að meta það í fyrramálið hvort hún fer í skólann.
Fór í mína venjubundnu heimsókn í Breiðholtslaug áðan, þvílík guðsgjöf þessar sundlaugar, maður er eins og nýhreinsuð rófa að sundferð lokinni.....þetta var bara það fyrsta sem kom upp í hugann þegar ég leitaði að lýsingarorði   Algerlega dásamleg tilfinning.
Gangið á Guðs vegum
Ég fór í apótek áðan, það er í sjálfu sér ekkert merkilegt nema fyrir þær sakir að ég var að sækja lyf fyrir Ólöfu mína, hún er sem sagt komin með lungnabólgu og þurfti að fá penicillin.  Hún fékk þrjár töflur og á að taka eina töflu á dag í þrjá daga.  Þegar vesalings afgreiðslustúlkan rétti mér pokann með lyfinu í og sagði mér verðið á þessum þremur pillum......takið eftir.....þrjár litlar penicillin töflur...þá bara starði ég á hana og hún á mig! Vá hvað mér brá....  þessar þrjár töfur kostuðu 4.852.- ! hver tafla kostar sem sagt 1617,333 !  Gott pilluverð þetta.  Ég hugsaði með hrillingi um alla þá foreldra sem eru með langveik börn og þurfa mikið að treysta á lyf.  En hvurslags er þetta eiginlega, hvers konar verð er þetta?
En hún er sem sagt með lungnabólgu litla stelpurófan mín, hún er búin að vera veik í 10 daga og vonandi verða þessar töflur til þess að henni fer að líða betur, þá er þessum fimmþúsunkalli vel varið.
Jæja.....Ásdís vinkona mín er á leiðinni núna og við ætlum út í blautan göngutúr.
Gangið á Guðs vegum
Þó efnahagsástandið sé ekki burðugt þá hefur velsældin streymt hér um heimili mitt.  Ekki af efnahagslegum gæðum heldur af samveru, afslöppun og þægilegheitum.  Kreppan er úti í kuldanum yfir jólin.  Við reynum bara að versla sem minnst við Baugsgengið og höfum því snúið okkur að kaupmanninum á horninu, eða þar sem næst "kaskó" eða "þín verslun" eru þær verslanir sem við höfum snúið okkur að í bili, jú og svo Krónan.  Okkur hefur alla vegana tekist að halda að mestu krepputalslaus jól, það sem af er.
En nú að allt öðru og skemmtilegra.  Ég er nú búin að fá þrjár af fjórum einkunnum í hús.  Ekki eru þær svo sem glæsilegar á blaði en ég er ánægð og veit hvað liggur að baki þeim.  Í trúarlífsfélagsfræði fékk ég 5,5 sem er ekki merkileg tala, en ég fékk það sem ég átti skilið og er bara sátt að hafa náð þessu.  Trúfræðin gaf mér 7 sem ég er rosalega ánægð með, þetta er stórt fag með feitri ritgerð að auki, svo ég er sátt. Og svo var það áhættuhegðun unglinga, í henni var var líka stór ritgerð og próf sem gilti 50%, niðurstaðan var 7,5 sem ég er svakalega ánægð með, þetta var 10 eininga áfangi sem ég sat m.a. með mastersnemum, svo ég er bara þokkalega sátt við mitt   En svo er það sem er mest spennandi af öllu, það er sálgæslan, ég fæ vonandi einkunn úr því fagi eftir helgi, og þetta er líka fagið sem mér fannst ég verða að standa mig vel í, svo þetta verður spennandi.
Elvar okkar kom heim núna um jólin og Hildur kom svo hingað þriðja í jólum.  Þau eru svo að fara norður aftur í fyrramálið, hún í skólann en hann að vinna.
Ólöf er búin að vera veik síðan 26. desember, kvef og hiti, ég er búin að fara með hana einu sinni í hlustun sem ekkert kom út úr, en nú ætla ég að fara með hana á barnalæknavaktina í fyrramálið, þetta er ekki eðlilegt hvað þetta er þrálátt.
Já nú styttist í hið hefðbundna og hversdagslega líf aftur, það verður bara gott að detta í þann gírinn aftur.
Gangið á Guðs vegum