Færsluflokkur: Bloggar

Öskurannsóknir

Pabbi minn kenndi mér það þegar gosið í Kröflu hófst 1975 að setja út hvítan disk til að mæla öskufall.  Norður á Dalvík gerðum við þessar rannsóknir nokkur kvöld í röð með fínum árangri, töluvert öskulag kom á diskinn. 

Nú er ég að gera samskonar tilraunir með börnunum mínum, að vísu í Reykjavík, en það verður spennandi að sjá hvort eitthvað mælist hjá okkur. 

Ég hef reyndar trú á því að niðurstaðan verði í öfugu mæli við fréttaflutning.  Við pabbi komumst að samskonar niðurstöðu í gamla daga, nema þá var mikið öskufall en lítill fréttaflutningur.

Við vorum harðari af okkur í gamla daga.


Starfsvika nýtt í heimilisverk...

Núna er starfsvika í deildinni minni í HÍ.  Þessa "frí"-viku eigum við að vinna að verkefnum sem hafa hrannast upp vegna tímaskorts eða almennrar leti....

Af því að ég er hvorki illa haldin af tímaskorti né leti, þá ætla ég að nýta daginn í að vera húsmóðir með meiru.

Ætla að baka í kistuna, sinna þvotti, gera við föt og lesa svo kannski aðeins í skólabókum á milli þess sem ég tek úr ofninum.

Það er svo dásamlegt að gera hlúð að því sem skiptir okkur mestu máli, heimilinu og fjölskyldunni.  Mikið vildi ég að allir væru svo heppnir.


Flensupælingar...

Gott að hvíla sig aðeins á "Iceslave" og velta sér upp úr svínaflensunni.  Ég heyrði í útvarpinu í morgun að það tekur bóluefnið eina til þrjár vikur að verða virkt í líkamanum.  Verður toppnum í útbreiðslu hennar ekki náð eftir þrjár vikur ?  Hvar erum við stödd í prósentutölunni (að 30-50% þjóðarinnar smitist) ? hversu stór hluti þjóðarinnar er nú þegar hugsanlega búinn að smitast?  Verður ekki óþarfi að bólusetja allt þetta fólk fyrst þetta tekur allt svona langan tíma?

Mest liggur náttúrulega á að bólusetja heilbrigðisstarfsmenn, þau þurfa jú að sinna okkur hinum ef við veikjumst.

Spurning með ríkisstjórnina! neee... það myndi ekki breyta neinu.


Leiðinda-pólitík í blíðviðrinu...

Langaði bara að láta ykkur vita af því að í Breiðholtinu eru 19°C....ekki amalegt það.  Sól með köflum og mjög hægur andvari.  Dásamlegt.  Vorkenni þeim sem þurfa að vera inni á svona góðviðrisdögum. 

Það munaði engu að ég missti áhugann á því að blogga hér inni á moggablogginu... en ég þrjóskast við.  Ég er orðin gríðarlega þreytt á endalausri pólitískri þrætu og skoðunum hér á vefnum, er ekki hægt að hafa þetta aðeins jákvæðara.  Ég fæ nóg af þessari umræðu í fréttatímum og umræðuþáttum bæði í sjónvarpi og útvarpi.  En þetta er víst frjálst val...svo hver skrifar um það sem hann langar og finnst skipta miklu máli.  Ég er bara ekki ein af þeim sem fæ eitthvað út úr því að þykjast hafa vit á öllu því sem gengur á, á landinu okkar litla....ég er löngu hætt að skilja það.  Í staðin sný ég mér bara inná við og sinni þeim sem eru mér næstir...þeir skipta mig öllu máli í lífinu.

áfram við sem skrifum um eitthvað annað en pólitík Halo


Starfsnámstörn að ljúka og sumarskóli tekinn við...... ekki að spyrja að því sko....

Svei mér þá .....ég held að sumarið sé bara komið og ég er sest aftur á skólabekk.  Ég skráði mig í ótrúlega skemmtilegan (a.m.k. eftir einn tíma) kúrs.  Hann fjallar um stjúpfjölskyldur og kennarinn rak okkur á gat á fyrstu mínútunum.  Það er ótrúlegt hvað maður er með fast mótaðar hugmyndir í kollinum..... alveg eins og þessi stjúp...mömmu/pabba pæling.  Merkilegt hvað stjúp-mömmu hugtakið er mun neikvæðara heldur en stjúp-eitthvað annað.  Ef þessi tími var forsmekkurinn af námskeiðinu þá eiga sko eftir að verða lífleg skoðanaskipti í þessum tímum.

Einkunnirnar mínar eru að koma í hús ein af annarri og þetta lofar allt góðu, misgóðu reyndar, allt frá 5,5 upp í 9,0.  Á bara eftir að fá einkunn í díakoníunni og sálgæslunni og þá er allt komið í hús. 

Fyrri helmingi starfsþjálfunarinnar er að ljúka og það verður með söknuði sem ég kveð þann góða stað.

Ooog á ég að segja ykkur eitt.... maðurinn minn sem er nú með þeim þrjóskari, hann er fallinn á facebook fráhaldinu.  Hann er kominn með facebook síðu..... LoL hver hefði trúað því.  Ég stend mig hins vegar vel ennþá.... er ekki komin með svona síðu og hef aldrei verið með hana... en aldrei að segja aldrei...  ég hef vonda reynslu af því.

Halo


Legg til sparnað í Ráðhúsinu.......alveg jafn góð hugmynd og að spara í skólakerfinu....

Jæja....nú er verið að skipleggja að skera niður í skólakerfinu!   Já þetta er frábær hugmynd! eða þannig ! Er ekki rétt að skoða einhverjar aðrar leiðir fyrst.  Mér dettur til dæmis í hug að draga úr rafmagnsnotkun í ráðhúsinu, lækka launin hjá varaborgarfulltrúum, draga úr gæslu í Ráðhúsinu, og síðast en ekki síst væri voða sniðugt að minnka fæðiskostnað um helming.  Sumir í borgarstjórn myndu alveg lifa það af!

Þetta eru alla vegana alveg jafn góðar hugmyndir eins og þær sem eru að koma fram varðandi grunnskólana, þ.e. að draga úr forfallakennslu, draga úr gæslu á skólalóðum og fl. álíka gáfulegt.  Ég held að þeir ættu að skammast sín fyrir að leggja þetta til.  Ekki hef ég heyrt neina umræðu um verulegan niðurskurð í yfirstýringu borgarinnar. 

Nóg af skömmum í bili....  Ég skráði mig í sumarkúrsa í Háskólanum áðan.  Er ekki mjög spennt á þessu augnabliki með þetta, en ég veit að þetta er samt það rétta að gera, ég verð örugglega voðalega glöð næsta vetur þegar róðurinn verður mér léttari.  Það sem meira er að BA ritgerðin lætur mig ekki í friði.....svo hver veit nema ég byrji á henni í sumar....en þetta er reyndar ekki ný hugmynd og ég hef heyrt hana frá svo mörgum öðrum .......sem byrjuðu EKKI á henni sumarið fyrir lokaárið.  ....svo ég ætla ekki að vera of  bjartsýn.  En þetta er samt verðugt markmið.

Halo

 


Og allir lifðu af....held ég.

Alveg vissi ég þetta.....það mætti halda að ég væri á sér samningi við algóðan Guð.  Ég káraði prófin í morgun og sat hér og vafraði á netinu og hvað haldið þið að ég hafi séð ? ég er að fá dásamlega heimsókn á morgun... ....  SUMARIÐ KEMUR Í HEIMSÓKN.  Alveg eins og pantað upp úr gömlum Frímannsbæklingi (þeir sem muna eftir þeim).  spáin er dásamleg og ég ætla að sinna garðinum mínum þegar ég verð búin í vinnunni.  Það er búin að vera rigning meira og minna núna meðan ég hef þurft að sitja inni og lesa, og svo þegar þessu öllu er lokið þá bara kemur sumarið.  Ég vona að það sé alkomið.

Annars var ég að ljúka prófunum mínum í morgun og þau gengu svona la la... bíð spennt eftir niðurstöðum.  Og allir vinir mínir í Háskólanum eru bara ennþá á lífi, reyndar eru ekki allir búnir í prófum, en ég held að við höfum þetta flest af.

Halo


Krepputalinu aðeins að linna...sem betur fer.

Mikið svakalega var himininn fallegur í morgun þegar byrjaði að birta, fallegri liti sér maður bara ekki.  Ég fór í mína venjubundnu sundferð í sundhöllina í morgun, það var dásamlegt að sitja úti í heita pottinum eftir sundið, himininn skartaði sínu fegursta og merkilegt nokk, það talaði bara enginn um kreppu.....vá hvað ég var fegin.....ég sem er með vænan skammt af jafnaðargeði og reiðist ekki svo auðveldlega....ég hefði sennilega staðið upp og beðið fólk að stein halda kj....  en sem betur fer kom nú ekki til þess, því enginn nefndi kreppudrusluna á nafn.

Ég hef verið töluvert andlaus síðustu daga.  Ég veit hvers vegna það er! það er vegna þess að pressan á verkefnaskil er að aukast dag frá degi......þetta er ávisst ástand sem ég fer í ....einhver ládeyða yfir mér í marga daga og svo þegar ég kemst í gang þá sprautast hreinlega undan mér verkefnin Cool  ég vona bara að ég fari að komast í gang með þetta.

Langar að benda ykkur á að fara nú út í dag ef þið getið og horfa upp í himininn, það er andleg heilun að gera það, blái liturinn er alveg einstakur á svona köldum dögum. 

Halo Njótið dagsins....það ætla ég að gera.   Já og svo hendi ég inn nýjum myndum á eftir ef ég hef tíma.


Er ekki Sullenberger...eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður....á leiðinni...?

Já var það ekki.....þetta finnst mér vera aðal fréttin á þessum drottins degi, þetta er það sem snertir mig beint á hverjum einasta degi.  Hvar á ég nú að versla....ég sem var farin að halla mér verulega að Krónunni...

Ég auglýsi hér með eftir kreppu-sparnaðar-raunsæis-matar-uppskriftabók fyrir venjuleg heimili, skrítið að enginn skuli koma með hana á markaðinn, hvar er konan sem gaf einu sinni út svona sparnaðarbók,....þessi frábæra bók var seld í Bónus...að sjáfsögðu.

Ég bíð nú spennt eftir Sullenberger.....var hann ekki á leiðinni að redda þessu fyrir okkur.....hann lofaði....Tounge

Halo


mbl.is Enn hækkar matarkarfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftaka í sjónvarpssal !

Mikið skelfing fannst mér leiðinlegt að horfa á spurningaþáttinn Útsvar í gær, ég held að það sé búið að eyðileggja þennan annars skemmtilega þátt fyrir mér.... 

Það sem mér hefur þótt skemmtilegt við hann er hversu ólíkur hann hefur verið Gettu betur þáttunum.  Nú hef ég ekkert á móti þeim þáttum....horfi og hlusta á þá af áfergju.....en þar eru allir á sama báti....rosaleg keppni, miklar æfingar og mikið skipulag.  En Útsvar á að fá að vera áfram þáttur þar sem alls konar fólk kemur saman og spreytir sig, er kjánalegt og ruglar og bullar og við heima í stofu getum samsamað okkur með, hlegið og skemmt okkur.  Í gærkvöldi var þetta bara aftaka í sjónvarpssal....og Kópavogsdrengirnir æfa sig ekki neitt, nei... þá dreymdi bara óvart alla sömu nóttina merkin fyrir nafnorð og sagnir.......já áttu annan góðan.  Þetta voru þraut skipulagðir Gettu betur drengir....gott ef þeir voru ekki allir í "happa naríunum" LoL en gáfaðir eru þeir....það fer ekki fram hjá manni. 

Niðurstaðan er þá sennilega sú að skemmtanagildi þáttarins er ónýtt fyrir mér, það er alveg augljóst að ekki er hægt að banna bæjarfélögunum að senda unga Gettu betur þátttakendur.  Það væri þó ráð að hafa þetta ekki eins áberandi.  Það væri t.d. hægt að taka Akureyringa sér til fyrirmyndar, í þeirra liði er m.a. einn Gettu betur drengur.....hann er reyndar orðinn fullorðinn í dag, læknir og allt.....en það ber miklu minna á þessu ofurgáfum ef liðið er blandað......sem gerir það að verkum að við hin sem teljum okkur til meðal Jóna skemmtum okkur betur.

En mér fannst Skagfirðingar miklu skemmtilegri og "mannlegri".....það er það sem ég vil horfa á.....hitt fæ ég í framhaldsskóla keppninni Gettu betur. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband